BioPol ehf. hefur skrifað undir samning við fyrirtækið Jellett Ltd. í Kanada sem miðar að rannsóknum, sölu og dreifingu á svo kölluðum Rapid Tests sem nota má til greininga á þörungaeitri í skelfiski og sjósýnum . Prófin, sem eru einskonar óléttupróf, eru hliðlæg ónæmispróf (Lateral Flow Immunoassay) sem hafa verið hönnuð með það fyrir augum að vera ódýr, einföld í notkun og gefa skjóta niðurstöðu.
Prófin hafa gefið góða raun sem skimunarpróf og eru dæmi um að rannsóknastofur hafi getað sparað umtalsverða peninga með notkun þeirra og fækkað músadrápi um allt að 60%. Til eru þrjár mismunandi gerðir af prófum en með þeim er hægt að mæla helstu tegundir af þörungaeitri (ASP, DSP og PSP) u.þ.b. 35 mínútum. Prófin munu einnig nýtast sem öflugt tæki við innra eftirlit og vöktun hjá kræklingaræktendum. Sumarið 2011 mun BioPol ehf. hefja samanburðarrannsóknir þar sem niðurstöður mælinga með Jellett prófum verða bornar saman við niðurstöður með öðrum mælingum.
Bjarni Jónasson verkefnastjóri hjá BioPol með þörungaeiturspróf frá Jellett í Kanada.