Fara beint í efnið
BioPolSjávarlíftæknisetur á Skagaströnd

Um BioPol

Sjávarlíftæknisetur í eigu sveitarfélagsins Skagastrandar, stofnað 2007.

Hlutverk

Kjarnastarfsemi setursins byggist á rannsóknum á lífríki Húnaflóa. Markmið rannsóknanna beinast meðal annars að möguleikum á nýtingu sjávarfangs sem ekki hefur haft skilgreind not eða eiginleikar ekki verið þekktir. Einnig beinist rannsóknarstarfið að umhverfisvöktun, með sérstaka áherslu á að fylgjast með breytingum á lífríkinu, áhrifavöldum og afleiðingum.

Við rannsóknir á vettvangi sjávarlíftækni er lögð áhersla á að kortleggja þau verðmæti sem þekkt eru, ásamt því að leita nýrra verðmæta og nýrra möguleika til verðmætasköpunar úr sjávarfangi, til dæmis á vettvangi fæðubótarefna, snyrtivara og íblöndunarefna fyrir matvæla- og fóðuriðnað.

Á vettvangi lífríkisrannsókna er lögð áhersla á samstarf við sambærilegar rannsóknastofnanir bæði innanlands og utan. Undirritaðir hafa verið samstarfssamningar við Háskólann á Akureyri, Scottish Association for Marine Science, Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar og Selasetur Íslands.

Rannsóknastofa BioPol með smásjám og vinnuborðum
Rannsóknastofan á Skagaströnd var tekin í notkun í apríl 2010.

Saga

  1. 2007

    Í apríl hófst á vegum sveitarfélagsins Skagastrandar hugmyndavinna að stofnun sjávarlíftækniseturs á Skagaströnd, í samstarfi við Hjörleif Einarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. var stofnað 5. júlí 2007 og hóf formlega starfsemi 1. september. Stofnfé var 7.000.000 kr., og Halldór Gunnar Ólafsson sjávarútvegsfræðingur var ráðinn framkvæmdastjóri.

  2. 2008

    Rannsóknir á hrognkelsum og selum hófust, og undirbúningur að ræktun smáþörunga. Fyrstu stofnarnir voru ræktaðir í tímabundinni aðstöðu sem BioPol hafði á fiskmarkaðnum Örva.

  3. 2009

    Uppbygging rannsóknaaðstöðu hófst í febrúar, og í apríl fór af stað vöktun fjögurra svæða í Húnaflóa með tilliti til kræklingaræktar.

  4. 2010

    Rannsóknastofan var formlega tekin í notkun í apríl. Sama ár hófust rannsóknir á skötusel, hörpudiski og beitukóngi.

  5. Í dag

    BioPol vinnur að rannsóknum á þörungum, hrognkelsum og nýtingu sjávarfangs, gefur út skýrslur og greinar og rekur Vörusmiðjuna í gamla frystihúsinu á Skagaströnd.

Stjórn

  • Adolf H. Berndsen, formaður
  • Hjörleifur Einarsson
  • Ólafur Sörli Kristmundsson
  • Sigríður Gestsdóttir
  • Oddur Þór Vilhelmsson

Varastjórn

  • Erla María Lárusdóttir
  • Ingibergur Guðmundsson
  • Magnús B. Jónsson
  • Steindór R. Haraldsson
  • Þröstur Líndal
Stjórnarfundur: fólk við fundarborð