Fara beint í efnið
BioPolSjávarlíftæknisetur á Skagaströnd

Vörusmiðjan

Vinnsluaðstaða fyrir framleiðendur og frumkvöðla í gamla frystihúsinu á Skagaströnd.

Vörusmiðja: matarhandverk, fræðsla, verslun

Vörusmiðjan er með vinnsluleyfi frá Matvælastofnun, og framleiðendur og frumkvöðlar eru velkomnir til okkar til að þróa og framleiða sína vöru. Vörusmiðja BioPol er í gamla frystihúsinu á Skagaströnd.

Judith Maria Scheja er verkefnastjóri Vörusmiðjunnar. Hún tekur við fyrirspurnum, veitir ráðgjöf og bókar vinnsludaga í Vörusmiðjunni. Opið er á skrifstofu Vörusmiðjunnar frá kl. 9 til 16 alla virka daga, og bóka verður Vörusmiðjuna fyrir fram.

Vefur Vörusmiðjunnar, vorusmidja.is

Verðskrá

Heill dagur í framleiðslu, mánudaga til föstudaga12.400 kr.
Heill dagur í framleiðslu, laugardaga og sunnudaga18.600 kr.
Hálfur dagur í framleiðslu8.680 kr.
Frumkvöðlar sem eru að þróa nýja vöru, dagurinn6.200 kr.

Bókanir og fyrirspurnir

Judith Maria Scheja
Sími 452 2977
judith@biopol.is