Rannsóknir
Kjarnastarfsemi setursins byggist á rannsóknum á lífríki Húnaflóa. Markmið rannsóknanna beinast meðal annars að möguleikum á nýtingu sjávarfangs sem ekki hefur haft skilgreind not eða eiginleikar ekki verið þekktir. Einnig beinist rannsóknarstarfið að umhverfisvöktun, með sérstaka áherslu á að fylgjast með breytingum á lífríkinu, áhrifavöldum og afleiðingum.
Þörungar og smáþörungar
Frá 2008
Undirbúningur að ræktun smáþörunga hófst árið 2008. Fljótlega var hafist handa við að safna stofnum, og þeir ræktaðir í tímabundinni aðstöðu sem BioPol hafði á fiskmarkaðnum Örva. Í febrúar 2009 hófst uppbygging rannsóknaaðstöðu, og í apríl 2010 var rannsóknastofan formlega tekin í notkun.
Áhersla hefur verið lögð á einangrun og ræktun ófrumbjarga einfrumunga (frumvera) af ættinni Thraustochytriaceae, „Thrausta“. Afurðir þeirra eru meðal annars fjölómettaðar fitusýrur með háu hlutfalli af omega-3 fitusýrum, sem eru notaðar í fiskifóður og fæðubótarefni. Thraustarnir eru frumframleiðendur þessara fitusýra í hafinu, og þær safnast síðan upp í fæðukeðjunni frá smákrabbadýrum til þorsksins og stærri sjávarspendýra. Það má því segja að með ræktun Thrausta sé stigið skref niður fæðukeðjuna í hafinu til að nálgast þessi mikilvægu næringarefni á sjálfbæran hátt.
Til að einangra Thrausta eru tekin sjósýni og þau meðhöndluð á sérstakan hátt til að fá einrækt. Stofnarnir eru fyrst einangraðir á agarskálum og síðan færðir yfir í vökvaræktir og stærri skala. Um 35 stofnar hafa verið einangraðir frá mismunandi stöðum við landið. Sumir þeirra hafa mjög áhugaverða fitusýrusamsetningu, og vísbendingar eru um að tveir þeirra framleiði litarefnið astaxanthin. BioPol heldur safn þörunga í rækt. Helstu samstarfsaðilar hafa verið Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri, Háskólinn á Akureyri og Matís ohf., sem hefur séð um greiningu á fitusýrum.
Árið 2010 vann BioPol markaðs- og viðskiptaáætlun fyrir lífrænt þörungaþykkni úr íslensku klóþangi og hrossaþara, með styrk frá Impru nýsköpunarmiðstöð og AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi. Síðari verkefni hafa beinst að þangi og þara í Húnaflóa, rauðþörungum í húðvörur, alginati í matvæli og smáþörungum sem fóðri fyrir lax.
BioPol tekur þátt í samstarfsverkefninu PHABB, um notkun veira til varnar í þörungarækt. Verkefnið er samstarf ýmissa þjóða og er leitt af Náttúruminjasafninu í París og Háskólanum í Aberdeen.
Skýrslur og greinar
- 2025Arctic and sub-Arctic marine diatom responses to PFAS exposure: Understanding physiological changes and resilienceArulananthan, A., Scholz, B., Karsten, U., Grossart, H.-P., Sigurbjörnsdóttir, A., Rolfsson, Ó. o.fl.
- 2025Environmental impact of brine from desalination plants on marine benthic diatom diversityGrammatiki, K., de Jonge, N., Nielsen, J. L., Scholz, B., Avramidi, E., Lymperaki, M. o.fl.
- 2025First record of the diatom pathogen Diatomophthora perforans cf. subsp. pleurosigmae (Oomycota) from the Mediterranean microphytobenthosScholz, B., Grammatiki, K., Avramidi, E., Lymperaki, M. M., Resaikos, V., Papatheodoulou, M. o.fl.
- 2025ParAquaSeq, a database of ecologically annotated rRNA sequences covering zoosporic parasites infecting aquatic primary producers in natural and industrial systemsVan den Wyngaert, S., Cerbin, S., Garzoli, L., Grossart, H., Gsell, A. S., Kraberg, A. o.fl.

Hrognkelsi
Frá 2008
Umfangsmikið verkefni hófst vorið 2008 undir forystu BioPol við rannsóknir á lífsháttum og hegðunarmynstri hrognkelsa (Cyclopterus lumpus). Fyrst um sinn var lögð áhersla á rannsóknir í Húnaflóa og Skagafirði, en síðan hefur verkefnið teygt anga sína um allt land. Verkefnið er unnið í samstarfi við Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar, Háskólann á Akureyri, Landssamband smábátaeigenda og Hafrannsóknastofnun. Ekki má gleyma þeim ómetanlega stuðningi sem smábátasjómenn um land allt hafa veitt BioPol, og hefði verkefnið aldrei gengið upp án þeirra.
Verkefnið er þríþætt: í fyrsta lagi merkingar á hrognkelsum til að skoða far þeirra, í öðru lagi veiðar á hrognkelsum með sérhæfðum veiðarfærum til ítarlegra rannsókna í landi, og í þriðja lagi að kanna hvort unnt sé að nýta hveljuna til framleiðslu á kollageni. Verkefnið hefur hlotið styrki úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins, frá fjárlaganefnd Alþingis og úr AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi.
Niðurstöður verkefnisins hafa vakið nokkra athygli, og óhætt er að segja að löng ferðalög einstakra fiska með ströndum landsins á hrygningartíma hafi komið mörgum á óvart. Af þeim niðurstöðum má meðal annars draga þá ályktun að um einn einsleitan stofn sé að ræða hringinn í kringum landið. Erfðafræðileg uppbygging stofnsins hefur síðan verið könnuð um allt Norður-Atlantshaf, og árið 2024 birtist grein um hvernig fá megi sem mest kollagen úr hveljunni.
Skýrslur og greinar
- 2024Maximizing collagen yield from underutilized lumpfish (Cyclopterus lumpus) skins by optimizing pre-cleaning and extraction methodsScheja, J. M., Sigurðarson, J. J., Ólafsson, H. G., Einarsson, H.
- 2020Intra- and interannual variation in fecundity and egg size of lumpfish (Cyclopterus lumpus) in IcelandKennedy, J., Ólafsson, H. G.
- 2019A brief history of lumpfishing, assessment, and management across the North AtlanticKennedy, J., Durif, C. M. F., Florin, A.-B., Fréchet, A., Gauthier, J., Hüssy, K. o.fl.
- 2019Conservation of spawning time between years in lumpfish Cyclopterus lumpus and potential impacts from the temporal distribution of fishing effortKennedy, J., Ólafsson, H. G.

Selir
Frá 2008
Síðan 2008 hafa um 500 selir verið krufðir og sýnum safnað úr þeim á vegum BioPol. Markmiðið er að rannsaka fæðu mismunandi selategunda við Íslandsstrendur. Fæðusamsetningin var síðast könnuð árin 1992 og 1993, og síðan þá hafa nokkuð miklar breytingar orðið á lífríki sjávar. Því er nauðsynlegt að afla nýrra upplýsinga um fæðu sela við mismunandi skilyrði í hafinu.

Vöktun og kræklingarækt
2009–2013
Í apríl 2009 fór af stað verkefni sem miðaði að því að vakta fjögur mismunandi svæði í Húnaflóa með tilliti til kræklingaræktar: Sölvabakka og Stapa austan megin í Húnaflóa og Gjögur og Djúpavík á Ströndum. Vaktaðir voru þeir þættir sem skipta hvað mestu máli fyrir vöxt og viðgang kræklings, helst selta, hitastig, magn og tegundir þörunga, eitraðir þörungar og magn kræklingalirfa í sjó yfir sumarið. Verkefnið hlaut styrk úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra, og BioPol lagði fram vinnu við öflun sýna og sérfræðiráðgjöf.
Í apríl 2010 hófst annað sambærilegt verkefni í Miðfirði, sem hlaut einnig styrk úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra. Söfnunarlínur fyrir krækling voru settar út í júlí 2010, og áseta og vöxtur voru vonum framar.
Skýrslur og greinar
- 2016Vöktun þorsks og ýsu í Húnaflóa (PDF)Sigurðsson, V.
- 2013Development of a monitoring programme for the occurrence of phytoplankton derived toxins in blue mussels (Mytilus edulis) in northern Icelandic coastal waters (PDF)Scholz, B., Jónasson, B., Ólafsson, H. G., Davidson, K., Einarsson, H., Magnússon, K. P.
- 2013Tilraunarækt á kræklingi í Miðfirði: vöktun á umhverfisþáttum, II. verkefnaár (PDF)Jónasson, B., Ólafsson, H. G.

Skötuselur
2010–2011
Sumarið 2010 hóf BioPol verkefni sem nefnist „Lífshættir, stofnsamsetning og vistfræðileg áhrif skötusels (Lophius piscatorius) á nýjum útbreiðslusvæðum“. Markmið verkefnisins var að afla þekkingar á lífsháttum, stofnsamsetningu og áhrifum skötusels á vistsamfélög á nýjum búsvæðum tegundarinnar við vestur- og norðurströnd Íslands. Samsetning veiðistofns var rannsökuð á völdum svæðum við Breiðafjörð, Vestfirði og Húnaflóa, og áhersla lögð á fæðunám skötusels og samspil við aðra nytjastofna, svo sem hrognkelsi. Markmiðið var ekki síst að bregðast við þeim miklu breytingum sem orðið hafa á útbreiðslu skötusels og styrkja grundvöll veiðinýtingar tegundarinnar.
Fyrst var lögð áhersla á fiska sem fengust sem meðafli í grásleppunet, en einnig voru rannsakaðir fiskar frá skötuselsbátum. Sumarið 2010 voru 750 fiskar mældir og krufðir, og alls voru 1420 skötuselir rannsakaðir á tveimur árum. Árið 2011 voru 197 skötuselir merktir.
Skýrslur og greinar
- 2011Lífshættir, stofnsamsetning og vistfræðileg áhrif skötusels (Lophius piscatorius) á nýjum útbreiðslusvæðum (PDF)Nebel, S., Ólafsson, H. G., Jónsson, B.

Hörpudiskur
2010–2011
Veiðar og vinnsla á hörpudiski voru um tíma nokkuð stór iðnaður á Norðurlandi vestra. Á árunum 1998–2000 varð vart mikillar aukningar náttúrulegra affalla hörpudisks á öllum helstu veiðisvæðum við Ísland, og talið er að sýking hafi valdið hruni í stofninum, svo að veiðar lögðust af.
Árið 2010 fékk BioPol styrk úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra til að gera úttekt á ástandi hörpudisksstofnsins í Húnaflóa með tilliti til sýkinga. Verkefnið var unnið í samstarfi við Árna Kristmundsson á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að ástand skeljanna sé enn fremur slakt, og því hafi tæpast skapast forsendur til nýtingar á stofninum í Húnaflóa.
Skýrslur og greinar
- 2011Ástand hörpudisks (Chlamys islandica) í Húnaflóa með tilliti til sýkinga (PDF)Ólafsson, H. G., Jónasson, B., Kristmundsson, Á.

Beitukóngur
2010
Markmið verkefnisins var að gera frumathugun á því hvort beitukóngur (Buccinum undatum) fyndist í veiðanlegu magni í Húnaflóa. Ef svo væri mætti gera ráð fyrir að veiðarnar gætu komið minni útgerðum á svæðinu til góða á tímum tekjusamdráttar vegna minnkandi veiðiheimilda. Til þess þurfti upplýsingar um ástand beitukóngsins á svæðinu: þéttleika, stærð, þyngd, aldur, kyn og sníkjudýrabyrði.
Trossur með beitukóngsgildrum voru lagðar á völdum svæðum í Húnaflóa, sem valin voru með tilliti til botngerðar og dýpis, og aflinn var tekinn í land og rannsakaður. Verkefnið var unnið í samvinnu við Sægarp ehf. í Grundarfirði, Vík ehf. á Skagaströnd og Vör, sjávarrannsóknasetur við Breiðafjörð, og hlaut styrk úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra.
Helstu niðurstöður bentu til þess að beitukóng væri ekki að finna í miklu magni við austanverðan Húnaflóa. Mælingar á kynþroska og stærð gáfu einnig til kynna að svæðisbundin veiðistýring væri nauðsynleg ef veiðar ættu að hefjast.
Skýrslur og greinar
- 2010Frumathugun á útbreiðslu og líffræði beitukóngs í Húnaflóa (PDF)Jónasson, B., Ólafsson, H. G., Kristjánsdóttir, L., Guðmundsdóttir, B., Lárusdóttir, Ó.
