Skip to Content

Ospar strandhreinsun

Biopol heldur úti strandvöktun samkvæmt aðferðafræði og leiðbeiningum frá OSPAR (samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins). Þetta er þriðja árið sem Biopol tekur þátt í verkefninu og vaktar ströndina á Víkum á Skaga. Ströndin í Víkum er ein af sex OSPAR ströndum hérlendis. Tilgangurinn með vöktuninni er að draga úr skaðsemi vegna mengunar á hafi og ströndum með því að finna út hvaðan rusl á ströndunum kemur, hversu hratt það safnast upp á ströndunum og fleira. Nánar má lesa um OSPAR verkefnið á vef Umhverfisstofnunar.
Á ströndinni í Víkum er talsvert af rekaviði og er hún því söfnunarsvæði fyrir rusl sem flýtur á haffletinum. Mest af ruslinu sem finnst þar er plast sem fylgir sjómennsku en plast er almennt í yfirgnæfandi meirihluta alls rusls sem finnst í íslenskum fjörum (sjá mynd úr skýrslu um örplastmengun á Íslandi).
Eins og sjá má á myndinni sem fyrlgir þessari frétt var mikið rusl á þessum 100 metra kafla í fjörunni sem var hreinsuð síðasta haust.