-
14. Oct .2019
Þari í austanverðum Húnaflóa (skýrsla)
Undanfarin misseri hefur Biopol stundað athuganir á þarabreiðum í austanverðum Húnaflóa. Til þess var notast við myndatökur með neðansjávardróna. Myndirnar má sjá í nýútgefinni skýrslu (hlekkur á skýrsluna). Verkefnið var styrkt af SSNV og unnið í samstarfi við Náttúrustofu Norðurlands vestra. Hér er hlekkur á skýrsluna
-
26. febrúar .2019
Tilkynning vegna merkinga á hrognkelsum
Hafrannsóknastofnun og BioPol ehf á Skagaströnd hafa um langt árabil átt í samstarfi með merkingar á hrognkelsum. Árið 2018 voru merkingar framkvæmdar með tvennum hætti. Annars vegar um 200 fiskar á hefðbundinni veiðislóð inni á Húnaflóa og hins vegar um 290 ungir fiskar í alþjóðlegum makríl leiðangri norður og suður af Íslandi og við austurströnd Grænlands
-
16. Aug .2018
Nýjar myndir úr höfninni (myndskeið)
Nýjasti "starfskrafturinn" hjá BioPol er kafbátur (neðansjávar flygildi) af gerðinni Trident frá OpenRov! Líklega munu eintök eins og þetta verða í hverri höfn innan skamms. Myndskeiðin eru tekin á eins til sjö metra dýpi og á þeim birtast nokkrar flyðrur og grjótkrabbi ásamt þorskfiskaseiðum...
The most recent addition to our fleet, an underwater drone, Trident from OpenRov! This handy equipment, suitable for both research and..